Leikstjóraparið Ellen Lofts og Þorbjörn Ingason frumsýndu tískumyndina Beat Street í samstarfi við Bast Magazine í gær. Þau eru bæði búsett í Kaupmannahöfn þar sem að myndin var tekin upp. Eitt stærsta karlamódel í Danmörku fer með aðalhlutverkið, Zakaria, sem að hefur gert það gott í ýmsum stórum verkefnum.
Í myndinni klæðist hann fatnaði frá H&M, WoodWood, Weekday, Nike ásamt fleiru. Ellen Lofts sá um stíliseringu.
Gísli Galdur sá um tónlistina.
Tískumyndir eru alltaf skemmtilegar. Narvi er með þetta og þessi mynd sannar það!
M E G A
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg