Hann Gísli vinur minn er einn af frumkvöðlum kaffihússins GÆS sem að opna mun í Tjarnabíói 1 júní.
Nú leyta starfsmenn kaffihússins eftir aðstoð almennings um að leggja þeim til kaffibolla fyrir komandi opnun.
Tekið verður á móti bollum í Ráðhúsi Reykjavikur í dag milli 14-16.
Verkefnið byggir á samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og á félagslegum skilningi á fötlun. Lögð verður áhersla á að hæfileikar hvers og eins fái að njóta sín og manngerðum hindrunum í samfélaginu rutt úr vegi.
Ég hvet sem flesta sem að mega missa eins og einn kaffibolla, til þess að leggja verkefninu lið.
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg