Bláa Lónið er svo sannarlega íslensk perla en það eru líka snyrtivörurnar þeirra, en ekki allir vita að fyrstu fimm vörurnar þeirra – þar á meðal kísilmaskinn og baðsalt Bláa Lónsins – komu á markað árið 1995.
BL+ the serum
Öflug formúla sem vinnur gegn öldrun húðar og styður við heilbrigði hennar. Inniheldur hinn einstaka BL+ COMPLEX, sem bætir kollagenbirgðir húðar og styrkir náttúrulegt varnarlag hennar, ásamt jarðsjó Bláa Lónsins, C vítamíns og þriggja tegunda hýalúrónsýra.

Eye Expert gjafasett
BL+ EYE SERUM
Áhrifaríkt augnserum sem gefur góðan raka, frískar, vinnur á fínum línum og dregur úr einkennum þreytu og þrota á viðkvæmu augnsvæðinu.
BL+ EYE CREAM
Háþróað augnkrem sem nærir, þéttir og dregur úr fínum línum. Næringarríkt og silkimjúkt krem sem verndar viðkvæmt augnsvæðið, gefur slétta og bjarta ásýnd.
SILK EYE MASK
Glæsilegur svefnmaski úr silki sem gerir góðan svefn enn betri.
Þessu setti mæli ég svo innilega með ♡

Skrifa Innlegg