Þetta heimili er algjör draumur og ég veit að þið eigið eftir að vera jafn heilluð og ég. Gróft efnisvalið í textíl og viðarhúsgögnum á móti skjannahvítum máluðum veggjum og gólfi gerir þetta hið fullkomna sænska sveitasjarmaheimili og ég er nánast flutt inn í huganum. Myndaveggurinn er ótrúlega fallegur og mjög fjölbreytt verk sem prýða hann, einnig finnst mér fallegur fjölskyldumyndaveggurinn hjá stiganum – eitthvað sem vantar á mitt heimili, fleiri fjölskyldumyndir. Þetta er með fallegri heimilum sem ég hef skoðað en hér býr hin sænska Therese Johansen en hægt er að fylgjast með henni á instagram hér.
Fallegt sænskt heimili – mig dreymir einmitt um að heimsækja Svíþjóð með fjölskylduna núna í sumar. Með hvaða borgum eða bæjum mælið þið að heimsækja með einn 3 ára í för?
Skrifa Innlegg