fbpx

LOKSINS STOFUBREYTINGAR

HeimiliPersónulegt

Draumasófinn er loksins kominn heim og við erum nýbúin að klára að setja hann saman. Þið sem fylgst hafið lengi með kannist líklega við það að ég hef verið í sófaleit í nokkra mánuði ef ekki ár og að lokum ákvað ég að kaupa Söderhamn sófann frá Ikea með bleiku áklæði og tungu. Það kemur inn mynd af “nýju” stofunni minni innan skamms – en þangað til getið þið séð smá á bakvið tjöldin á Svartahvitu snappinu, hér að neðan tók ég saman stemminguna sem ég er að leitast eftir núna. Ég viðurkenni að ég hef lengi verið mjög þreytt á stofunni minni sem þarfnaðist alvarlega smá yfirhalningar.

Eins og fram hefur komið þá keypti ég mér bleika Söderhamn sófann sem er reyndar ekki þessi samsetning sem sjá má að ofan. Ég keypti mér einnig ljósbrúnt kýrskinn fyrir dálitlu síðan en vinkona mín sem var að flytja heim erlendis frá kom með skinnið í gær og það er gullfallegt. Mitt skinn er keypt frá Hiderugs í Englandi en ég vil þó benda á að kýrskinn fást hér heima hjá t.d. Sútaranum á Sauðárkróki og einnig til dökkbrúnt í Ikea. Ég er alltaf að koma mér í það að halda smá bílskúrssölu en ég hafði hugsað mér að losa mig við mikið af plakötunum mínum og gæti vel hugsað mér í staðinn nýtt frá elsku Kristinu Krogh sem er svo hæfileikarík, það ásamt draumaspeglinum frá Further North sem varð loksins minn nýlega og fær sinn stað í stofunni.

Ég þarf svo líklega að skipta út sófaborðinu mínu sem er gamalt Stockholm 60’s borð frá Ikea en nota þá Svartan borðið frá Ikea sem hefur nýst sem plöntustandur lengi vel og fær núna loksins að vera í aðalhlutverki. Ég lenti í smá tjóni nýlega með svarta Flowerpot lampann minn og eins óheppin og ég get verið þá er svarti lampinn hættur í framleiðslu svo ég skipti honum þá líklega út fyrir matt-gráann (ég er a.m.k. að vona að heimilistrygginging aðstoði hér).

Ég hlakka mikið til þess að raða upp á nýtt í stofunni en mikið sem ég hef verið löt við að breyta til á heimilinu mínu. Það kemur jafnvel til greina að mála!

Eigið annars góða helgi – hæ hó og jibbý jei.

KAUP DAGSINS : KLASSÍK FRÁ HANS J. WEGNER

Skrifa Innlegg

2 Skilaboð

  1. Matthildur

    16. June 2017

    Alltaf svo smekkleg Svana ?Hlakka til að sjá nýju stofuna þína sem verður án efa dásamleg eins og allt annað. Ég eignaðist fyrir nokkrum vikum Flowerpot borðlampa í gráum-matt og er ég að fíla litinn ótrúlega vel….grár-mattur fær því mitt atkvæði ?
    (pantaði minn að utan og munaði það þónokkru í verði)

    • Svart á Hvítu

      22. June 2017

      Takk fyrir:*
      Já er alveg að hallast að þeim gráa finnst hann alveg gordjöss – góð hugmynd með að panta að utan. Stundum gleymist sá möguleiki alveg!