fbpx

KAUPMANNAHÖFN: STÓRKOSTLEG PAUSTIAN VIÐ STRIKIÐ

HönnunVerslað

Ég var á dögunum stödd í Kaupmannahöfn og kíkti við í eina fallegustu verslun sem ég hef augum litið. Paustian er danskt hönnunarhús sem stofnað var árið 1964 og opnaði fyrr á árinu nýja concept verslun við Strikið í húsnæði sem hýsti gamlan banka frá árinu 1868. Gylltar súlur, marmaragólf, einkennandi svartar og hvítar flísar og stórfenglegt steypt loft setja mikinn svip á húsnæðið en það eru gamlar peningahvelfingar og peningahólfin sem núna geyma stórkostlega hönnun sem gera verslunina að upplifun að heimsækja.

Verslunin er staðsett við Strikið á Niels Hemmingsens Gade. Þetta er í raun hliðargata sem liggur upp frá Illum Bolighus. 

Ég mæli svo sannarlega með heimsókn.

// Fylgstu einnig með á Instagram @svana.svartahvitu 

NÝTT & SPENNANDI FRÁ ANGAN : ANDLITSMASKAR

Skrifa Innlegg

Skilaboð 1

  1. Iris Osk Laxdal

    3. November 2019

    VÁÁÁ… þetta er alveg truflað flott!