Það færist alltaf yfir mig viss ró þegar ég skoða heimili eins og þetta, allt í ljósum og ljúfum litum og heildarmyndin er svo notaleg. Mikið hlýtur að vera gott að búa hér. Svefnherbergið heillar mig sérstaklega mikið og er draumur í mínum augum, myndaveggurinn í stofunni gefur einnig góðar hugmyndir.
Það er að hellast yfir mig smá breytingarfílingur – og ég gæti vel hugsað mér að mála tvö herbergi hér heima, Andrési mínum eflaust til mikillar gleði haha.
Myndir : My Scandianvian home / Ljósmyndari: Amanda Axelsson
Frí á morgun – jibbý!
// Fylgstu einnig með á Instagram @svana.svartahvitu
Skrifa Innlegg