Bloggarinn Ulrika hjá 17 Doors birti í gær þessar myndir af heimili sínu, innlitið var tekið af stílistanum Pellu Hedeby og ljósmyndaranum Kristofer Johnson fyrir tímaritið Residence. Þó að myndirnar hafi verið teknar árið 2013 eru þær mjög svo up to date hvað varðar stílinn a.m.k. Það er að sjálfsögðu mikill Pellu stíll á myndunum en gardínurnar voru t.d. allar teknar niður fyrir myndatökuna fyrir stílhreinna lúkk. Áhugavert hvernig tímaritin erlendis virðast flest koma með stílista inná heimili fólks til að stilla öllu upp og fjarlægja ljótu hlutina. Ég veit ekki hvort slíkt myndi falla í kramið hér heima? Eflaust margir sem myndu þiggja aðstoðina til að sýna heimilið sem flottast en aðrir sem myndu aldrei taka þátt í slíku innliti sem sýndi ekki 100% þeirra persónulega stíl. Eða hvað haldið þið?
Þessi mynd hér að ofan var í uppáhaldi hjá Ulriku sem segist óska þess að vera með sínar eigin kryddjurtir í eldhúsinu. Það fær mig til að hugsa hvort hún eigi þá nokkuð t.d. öll húsgögnin í þessu innliti?
Mér finnst þetta afskaplega fallegt heimili, en finnst þó alltaf áhugavert þegar fólk fær lánaða hluti í verslunum til að sýna í innlitunum sínum, í þessu tilfelli var það þó stílistinn sem valdi hlutina eftir sínum smekk. Þetta er töluvert algengara en þið haldið í íslenskum tímaritum;)
-Svana
Skrifa Innlegg