Ég rakst á þetta fallega og elegant heimili á netvafri mínu í gær eftir að Bjartur sofnaði og heillaðist alveg. Borðstofan er sérstaklega falleg með einstökum og sjaldséðum T-stólum Arne Jacobsen og grámálaðan glerskáp sem tónar vel við grængráa vegginn. Þetta haustveður okkur fær að hafa smá áhrif á heimilin sem ég skoða, er ég nokkuð ein um það að langa til þess að skríða undir teppi og kveikja á kerti á kvöldin?
Myndir via Hitta hem / Ljósmyndari: Sara Medina Lind / Hönnun og stílisering: Marie Ramse
Ég er dálítið skotin í þessum heimilum þar sem allir veggir eru málaðir, það verður eitthvað svo hlýlegt þó svo að þessi hugmynd henti okkur í leiguíbúðunum ansi illa haha.
Eigið annars alveg glimrandi sunnudag!
Skrifa Innlegg