Loðið teppi, bleikar gardínur og brúnir veggir er sjaldgæf sjón en sjáið hvað þetta er fullkomin samsetning. Hér býr Marie Olsson Nylander, frumkvöðull, innanhússhönnuður og mikill antík unnandi. Hún heldur úti fallegum instagram aðgangi þar sem hún deilir myndum frá heimilum sínum sem staðsett eru í Svíþjóð og á Sikiley. Hún þræðir antík markaði í leit að einstökum hlutum og útkoman er heimili engu líkt!
Sjáið þessa dásemd sem þetta heimili er –
Sjáið hvað bleikur og brúnn eru ‘match made in heaven’ algjör draumur! Fyrir áhugasama þá getið þið fylgt Marie Olsson Nylander á Instagram hér.
// Fylgstu einnig með á Instagram @svana.svartahvitu
Skrifa Innlegg