fbpx

Á EFSTU HÆÐ Í HJARTA STOKKHÓLMS

Heimili

Ég verð alltaf jafn glöð þegar mér tekst að finna innlit sem eru ólík þessum hefðbundnari, þar sem húsráðendum hefur tekist að skapa sinn persónulega stíl með fallegu litavali og vel völdum hlutum úr ólíkum áttum. Hér er einmitt þannig heimili, staðsett á efstu hæð í gömlu fjölbýlishúsi sem hefur verið gert upp þó með athygli fyrir arkitektúr og uppruna hússins sem er frá 1935. Ég veit vel að stundum hljóma ég eins og biluð plata, en veitið því athygli hvað gangurinn er fallegur málaður svona bleikur og alveg upp í loft, þó er ég viss um að flestir litir hefðu komið vel út þegar loftið fær að vera með.

Það sem gerir íbúðina helst ólíka öðrum eru allir dökku litirnir sem helst njóta sín í mottum, gardínum, gólfefnum og listaverkjum. Langt frá því að vera hefðbundin skandinavísk íbúð þrátt fyrir það að vera staðsett í hjarta Stokkhólms.

Ég er sérstaklega hrifin af þessari mynd og þá helst af uppstillingunni ofan á arninum þó svo að hann sjálfur sé einnig mjög fallegur. 

Vel vandað litaval þar sem litirnir draga fram það besta úr hinum.

Hlýlegt og notalegt barnaherbergi.

Myndir via Historiska Hem

Ég vil þakka ykkur fyrir ótrúlega jákvæð viðbrögð við færslunni sem ég birti á facebook síðu Svart á hvítu í gær og læt hana fljóta með hér líka.

“Ég las vel tímabæra færslu í kvöld frá bloggkollega mínum í Svíþjóð – Trendenser um það hversu fátítt það er orðið að lesendur skilji eftir spor á bloggsíðum sem þeim líkar við.

Að sitja við tölvuna alla daga ársins í leit að fallegu efni sem veitir innblástur til að deila með lesendum sem sækja til okkar innblástur – án nokkurs gjalds. En gjaldmiðillinn er í raun sá að fá að heyra í lesendum, að það sé skilið eftir spor, smellt á like hnappinn eða á hjartað sem er fyrir neðan hverja færslu.
Ég er með nokkur þúsund lesendur sem lesa SVART Á HVÍTU og ég reyni einnig mitt allra besta að svara hverjum og einum sem sendir mér póst í leit að ráðleggingum en fjöldinn sem smellir á like hnappinn er í engum takti við fjöldan sem les færslurnar mínar
Mér finnst ég því ekki biðja um mikið þegar ég segi ykkur hversu gaman mér finnst að heyra frá ykkur – í alvöru!”

SJARMERANDI HEIMILI MEÐ BLÁUM TÓNUM

Skrifa Innlegg

Hætta við svar

7 Skilaboð

  1. Margrét

    23. June 2017

    Hvert rýmið er öðru fallegra! Hvernig er þetta hægt? Takk Svana fyrir innblásturinn. :)

  2. Birna Antonsdóttir

    23. June 2017

    Takk Svana fyrir að benda okkur á að sýna viðbrögð við því sem þú ert að bjóða upp á. Ég hef mjög gaman af því að lesa og skoða færslurnar þínar og innlitin sem þú sýnir okkur eru hvert öðru dásamlegra. Ég viðurkenni að ég hef ekki alveg áttað mig á að smella á like eða kommenta hér á blogginu eins og maður gerir á Fb. Bæti úr því :)

  3. Áslaug

    23. June 2017

    Góð ábending! Mér finnst einstaklega gaman að lesa póstana þína og þeir og þú veita mér innblástur :)

  4. Inga

    26. June 2017

    Tek þetta til mín! Les hverja fræslu frá þér og bíð alltaf spennt eftir nýju efni frá þér, hvort sem það er hér á insta og eða á snappinu ? ❤️ Hitti meira að segja konu um daginn frá Sérefni og þú barst í tal og ég var það
    stór í orðum að ég sagðist Elska þig ? Nei nú hljóma ég eins og stalker! Takk fyrir að vera frábær penni með gott auga ❤️

    • Svart á Hvítu

      28. June 2017

      Hahahaha það sem þetta komment gladdi mig mikið!! Ég bráðna niður í tær!
      Takk fyrir að vera svona mikið yndi og skrifa þetta til mín, ég fæ bæði alveg hlýtt í hjartað og auka pepp til að skrifa betra og meira efni:)
      -Svana

  5. Inga Maren Rúnarsdóttir

    20. May 2018

    Mér finnst æðislega gaman að skoða bloggið þitt <3