Ég tók saman lista af hlutum sem mér finnast fallegir þessa stundina. Það verður að viðurkennast að ég hef ekki verið sú metnaðarfyllsta í að setja saman outfit og stæla mig upp síðustu vikurnar, enda nóg að gera að hugsa um Aþenu Röfn og svo er líka skemmtilegra þessa dagana að dressa hana! En hérna eru nokkrir hlutir sem ég gæti hugsað mér að klæðast í sænska sumrinu.
Eyrnalokkar: Maria Black // Húrra Reykjavík – hér
Buxur: Acne Studios – hér
T-shirt: Heron Preston // Húrra Reykjavík – hér
Gleraugu: Mig langar svo í ný gleraugu og þessi umgjörð er klassík frá Oliver Peoples. Ég hef ekki hugmynd um hvort hún fari mér en eitthvað í þessum dúr heillar mig þessa stundina. – hér
Skór: JW Anderson x Converse. Ég elska glimmer, ég elska Converse og ég elska neon. Þessir skór eru eiginlega hannaðir fyrir mig! – hér
Töskur: Simon Miller bucket bag – hér
—
Andrea Röfn
Skrifa Innlegg