Ég verð að segja ykkur frá uppáhalds götuskónum mínum þessa stundina, P-6000 frá Nike. Þeir eru mega þægilegir, sem skiptir mig öllu máli núna þar sem ég þramma marga kílómetra á dag með Aþenu Röfn í vagninum. Þar að auki elska ég hvað þeir eru íþróttalegir í útliti og koma í fallegum litasamsetningum. Ég pantaði mína skó frá Nike, en heima á Íslandi veit ég að þeir fást í þremur litasamsetningum í Húrra Reykjavík.
Svo verð ég líka að lofsyngja þessar buxur – frá Won Hundred / Húrra Reykjavík.
—
Andrea Röfn
Fylgið mér á instagram @andrearofn
Skrifa Innlegg