Á fimmtudaginn frumsýndi Erna Bergmann nýja sundfatamerkið sitt sem ber nafnið Swimslow. Erna hannar sundbolina sjálf en þeir eru framleiddir á Ítalíu úr endurunnu hráefni. Þannig vill hún lágmarka umhverfisáhrif tengd framleiðslunni, sem mér þykir virkilega falleg og rétt hugsjón.
Sýningin var partur af Hönnunarmars og ég var ein fyrirsætanna sem gengu fyrir Ernu. Þetta var virkilega flott sýning og mikið af fólki sem mætti. Sundbolirnir eru ekki bara fallega hannaðir og saumaðir heldur eru þeir líka mjög klæðilegir og þægilegir. Mér brá smá þegar hún rétti mér hvítan sundbol til að ganga í, en núna langar mig bara í hann!
Myndirnar tók Laimonas Dom Baranauskas –
Innilega til hamingju, elsku Erna <3
xx
Andrea Röfn
Skrifa Innlegg