Góðan og gleðilegan föstudag. Föstudagar eru í algjöru uppáhaldi hjá mér eins og ég hef oft nefnt hérna á blogginu. Á því er engin breyting á þessum tímum þrátt fyrir að flestir dagar geti verið frekar líkir. Mér finnst svo mikilvægt að gera greinarmun á því hvaða dagur er, þannig lærir maður að meta enn frekar litlu hlutina eins og pizzu á föstudögum, notalega sunnudagsmorgna og rútínu á mánudögum svo eitthvað sé nefnt.
Annars langaði mig til að deila með ykkur mínum uppáhalds hlaðvörpum. Ég hlusta mikið á þau úti á röltinu, meðan ég elda og þegar ég æfi. Mér finnst þau frábært meðal fyrir andlegu hliðina sem þarf reglulega á upplyftingu að halda þessa dagana.
Mín uppáhalds hlaðvörp, ekki í neinni sérstakri röð!
Normið
The Snorri Björns podcast show
Í ljósi sögunnar
Hismið
Helgaspjallið
Kraftbirtingarhljómur guðdómsins
Þarf alltaf að vera grín?
Skoðanabræður
Laugardagskvöld með Matta
Bara við
Þegar ég verð stór
Málið er
Grínland
Fæðingarcast
Þokan
—
Vonandi fáið þið innblástur frá þessum lista og hlustið á eitthvað skemmtilegt með helgarbakstrinum, æfingunni, tiltektinni eða bara uppi í sófa með góðan kaffibolla. Góða helgi!
Andrea Röfn
Fylgið mér á instagram @andrearofn
Skrifa Innlegg