Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra, SLF, er mér mjög kært en þar er unnið ómetanlegt starf í þágu fatlaðra. Það er því með glöðu geði og brosi á vör sem ég kaupi jólaóróann og kærleikskúluna. Markmið kærleikskúlunnar og jólaóróans er að auðga líf fatlaðra barna og ungmenna og rennur allur ágóði til starfs í þágu SLF
Kærleikskúla ársins er Mandarína eftir Davíð Örn Halldórsson. Líkt og ég fjallaði um fyrir ári síðan hóf Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra útgáfu Kærleikskúlunnar árið 2003 og úr er orðið safn listaverka eftir marga af okkar þekktustu listamönnum. Davíð Örn er í fremstu röð íslenskra listmálara. Kærleikskúlan er munnblásin og er hver kúla einstök.
Allur ágóði af sölu kærleikskúlunnar rennur til starfsemi SLF í Reykjadal. Í Reykjadal dvelja fötluð börn og ungmenni í sumarbúðum og um helgar á veturna. Þar upplifa þau ævintýri og hitta jafnaldra sína.
Jólaórói ársins er Giljagaur eftir Lindu Björgu Árnadóttur og Bubba Morthens. Giljagaur er níundi óróinn í Jólasveinseríu Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra en fyrsti jólasveinninn sem kom til byggða var Kertasníkir árið 2006. Jólasveinarnir eru alltaf hannaðir af að minnsta kosti tveimur listamönnum, hönnuði og skáldi.
Allur ágóði af sölu jólaóróans rennur til Æfingastöðvarinnar, en þar fer fram umfangsmesta sjúkra- og iðjuþjálfun barna á landinu. Ég á tvær yndislegar litlar frænkur sem brosa skært á þessari mynd sem tekin var í Æfingastöðinni en þær sækja þangað æfingar reglulega.
Kærleikskúlan og jólaóróinn eru falleg viðbót við jólaskrautið eða í jólapakkann.
Á kaerleikskulan.is og jolaoroinn.is er að finna vefverslanir og upplýsingar um sölustaði.
Kærleiks- og jólakveðjur
xx
Andrea Röfn
Skrifa Innlegg