fbpx

FOKK OFBELDI

FJÖLMIÐLARÍSLENSKTUMFJÖLLUN

Þið hafið eflaust mörg tekið eftir herferð UN Women sem ber nafnið Fokk ofbeldi. Erna Hrund fjallaði um herferðina hér en mér finnst hún svo falleg að ég vil líka fjalla um hana.

Processed with VSCOcam with f2 preset

Herferðin er gerð til að vekja athygli á því að vinna þarf sameiginlega gegn ofbeldi gegn konum og stúlkum sem er útbreiddasta mannréttindabrot í heiminum. Tölfræði dagsins í dag er sú að

– yfir 600 milljónir kvenna búa í löndum þar sem heimilisofbeldi er ekki refsivert
– konu er nauðgað á 26 sekúndna fresti í Suður Afríku
– í Brasilíu deyja 10 konur daglega vegna heimilisofbeldis

UN Women vinnur ötullega að því að breyta þessu. Látum þetta verða árið þar sem breytingar eiga sér stað. Árið sem konur eru frjálsar og án ótta við ofbeldi. Landsmönnum gefst nú tækifæri til taka þátt í byltingunni og gefa ofbeldi fingurinn með því að kaupa Fokk ofbeldi armbandið. Með aukinni vitund eiga breytingar sér stað.

Armböndin fást í Lyfju, Apótekinu og Heilsuhúsinu um land allt og kosta 2000 krónur. Við Aron Kristinn litli bróðir erum bæði komin með armbönd og göngum stolt með þau. Ég hvet ykkur til að styrkja þetta fallega málefni og taka um leið afstöðu gegn kynbundnu ofbeldi.

Processed with VSCOcam with f2 preset

Í tilefni Fokk ofbeldi herferðarinnar verður Milljarður rís í Hörpu á morgun, föstudag, klukkan 12. UN Women á Íslandi vilja hvetja alla til að mæta með Fokk ofbeldi armböndin sín og dansa í gegnum hádegið við tónlist frá DJ Margeiri. Saga Garðarsdóttir verður kynnir.

veggmynd

Processed with VSCOcam with f2 preset

Eins og þið sjáið er ég á leiðinni á SÓNAR í kvöld. Leyfi ykkur að fylgjast með bæði hér og á instagram   @andrearofn

xx

Andrea Röfn

GRAMMY VERÐLAUNIN

Skrifa Innlegg

Hætta við svar

Skilaboð 1

  1. Hrafnhildur

    12. February 2015

    Ótrúlega flott framtak. Aftur á móti líka ótrúlega sorglegt að sjá hvernig samfélagið er búið að vera að
    hæpa 50 shades of gray á sama tíma og þetta átak er í gangi og hvernig ofbeldi er einhvernveginn gert að einhverjum eftirsóknarverðum hlut í henni, maður spyr sig hvaða skilaboð það sendir til ungs fólks. Þykir mjög aðdáunarvert að trendnet virðist ekki ætla að taka þátt í því :-)