Það er nóg af stuði á þessu heimili en heimilisfólkið virðist ekki mjög smeikt við liti. Það gengur alveg fullkomlega upp í þessu tilfelli enda heimilið alveg hvítt í grunninn og því meira rými til að leika sér með liti án þess að þeir verði yfirþyrmandi. Til að toppa gleðina þá er allskyns mix af húsgögnum bæði gömlum og nýjum og Aalto, Wegner, Ikea og Eames eru t.d. góðir saman í eldhúsinu. Ég er alveg viss um að þau sem búa hér séu mjög hamingjusöm…
Æðisleg hugmynd að ská mála rendur í stigaopið, kemur sérstaklega vel út í bleiku.
Gym hooks frá HAY eru flottir undir viskastykki.
Myndir via
Mjög smart og glaðlegt heimili, eruð þið ekki sammála því? Það má alltaf bæta smá lit við heimilið:)
Skrifa Innlegg