fbpx

ÞORIR ÞÚ? INNLIT MEÐ SVÖRTU LOFTI

Heimili

Það eru ekki margir sem þora að mála veggina á heimilinu svarta en hvað þá að mála aðeins loftið svart! Útkoman er svo allt annað en við erum vön og alveg hrikalega flott. Takið líka eftir hvað háu gólflistarnir koma vel út, – það er að verða aftur mjög vinsælt að bæta við fallegum gólflistum sem gefa heimilum svo mikinn karakter og hlýju. Þessi gömlu, sérstaklega sænsku heimili sem við sjáum hafa mörg hver að geyma virkilega fallega og gamla lista og tala nú ekki um dásamlegu rósetturnar í loftum, en það er ekkert sem segir að við megum ekki bæta slíku við á okkar heimili þó það sé ekki “upprunalegt”. Ef þú ert að taka í gegn heimilið þá er þetta klárlega eitthvað sem ég mæli með að kíkja á.

4kjs14q1dumhopib4kjs14es7umhoph54kjs16k25umhopos4kk2r5plnl1oslaf4kjs13nqhumhopfs   4kjs15a8dumhopk4  4kjs55ltpphrlard 4kjs1494humhopgi 4kjs1726fumhopql

Fleiri myndir má sjá hjá Valvet.se

Þessar myndir eru akkúrat það sem ég þurfti í dag – heimilisinnblástur í betra lagi!

svartahvitu-snapp2-1

DRAUMURINN UM GLERSKÁP

Skrifa Innlegg

Hætta við svar

2 Skilaboð

  1. Katrín Eva

    1. March 2017

    Ahhh of nettað ! Lét mála loftið í svefnherberginu og einn vegg matt svart og það er bara of mikið að gera sig. Herbergið faðmar mann einhvernveginn… Ætla næst að prófa loftið á baðherberginu, held það muni lúkka í flútti við allt hitt :D

  2. Ellen Björg

    2. March 2017

    Einstaklega skemmtilegt innlit :)