fbpx

SKEMMTILEGUR STÍLL Á HEIMILI BLOGGARA

Heimili

Var ég ekki búin að lofa að sýna ykkur fullt af hollenskum heimilum, jú ég hélt það nefnilega! Hér er eitt æðislegt heimili en hér býr bloggarinn og hönnuðurinn Marij Hessel en hún heldur úti bloggsíðunni My Attic. Þar deilir hún reglulega myndum af heimilinu sínu sem er mjög skemmtilegt og þaðan má fá fullt að hugmyndum. Stíllinn er kvenlegur og smá krúttaður og hlutirnir virðast vera héðan og þaðan, bæði nýjir og notaðir sem hún hefur fundið á flóamörkuðum. Ég hef mjög gaman af svona heimilum þar sem gamalt og nýtt mætist, og hér finnst mér það hafa heppnast sérstaklega vel.

marij1dmarij1bDSC_5086marij9DSC_4478DSC_5684DSC_8534A marij3 DSC_3689DSC_5108marij7DSC_5113

 Myndir via My Attic / Marij Hessel

Ég er sérstaklega hrifin af fagurbláa litnum á einum vegg heimilisins, ekkert ósvipaður litnum sem við máluðum í herberginu hans Bjarts. Marij virðist svo hafa notað afgangsmálningu og málað einn koll í þessum fallega lit, sem kemur dálítið skemmtilega út. Stofan finnst mér líka æðisleg, litrík og hressandi með hlutum úr öllum áttum, svo skorar svefnherbergið reyndar mjög hátt en þessi myndaveggur er virkilega töff. Ef ég mætti breyta einhverju þá yrðu það eldhússtólarnir, mér finnst þeir vera of ‘heavy’ þegar borðið er líka í svipuðum stíl.

Hvaða rými er í uppáhaldi hjá þér?

x Svana

Ekki missa af neinu, fylgdu endilega Svart á hvítu á facebook, hér.  

PÁSKAFÖNDRIÐ

Skrifa Innlegg

Hætta við svar

7 Skilaboð

  1. María Rut Dýrfjörð

    31. March 2015

    Mínískrifstofan og stofan eru æði, gæfi mikið fyrir eigið skrifborðsrými eins og þetta í stað þess að vinna frá eldhúsborðinu!

    • Svart á Hvítu

      31. March 2015

      úff já, þvílík hamingja hér á bæ þegar ég loksins eignaði skrifborðsrými.. sem reyndar verður bara barnaherbergi one day haha:)

  2. Fjóla Finnboga

    31. March 2015

    Svefnherbergið finnst mér geggjað!! Finnst þessi myndaveggur alveg hrikalega töff!!
    Er einmitt í bedroom makeover hugmyndaferli og þessi myndaveggur kemur sterkur inn :)

  3. Sigríður Helga Gunnarsdóttir

    31. March 2015

    Finnst svarta og hvíta blómahengið og leðursnagarnir geggjað.

  4. Margrét

    1. April 2015

    hvítu gólfin! að hafa hvít gólf gerir öll rými fallegri.
    Annars er margt virkilega fínt þarna, viður og plöntur i bland við pastel gefur þessu fallegt og heimilislegt lúkk:)

    • María Rut Dýrfjörð

      1. April 2015

      Tek líka undir þetta með hvítu gólfin, gólfefnaval íslendinga er frekar einsleitt og að mínu mati ekki alveg það fallegasta.