fbpx

SÍÐASTA INNLITIÐ FYRIR JÓL

Heimili

…síðasta innlitið sem ég birti fyrir jól og það er ekki jólalegra en þetta:) Ég er farin að efast um að ég sé komin í nógu mikið jólaskap, en það hlýtur að koma í dag, þá verða keyptar síðustu gjafirnar, rölt laugarveginn, horft á jólamynd og pakkað inn gjöfunum:)

Innlitið kemur frá snillingunum hjá sænsku fasteignasölunni Fantastik Frank, mjög “hipp og kúl” íbúð sem staðsett er á Kungsholmen, Stokkhólmi. SFD45DF336D840A4BDAA51DAF9F0C9B1DC4_960x

SFD4B8FC8160B85464DB09159D1657DC18B_960x SFD9CDFD33CC5AB444F9DB9C089177AA672_960x

Ég elska þessa borðlampa í svefnherberginu, mér finnst líka áhugavert að á þessu heimili eru allar plöntur uppi á borðum, takið eftir því. Það hefur verið smá vinsælt undanfarið, að stilla pottaplöntum upp á ótrúlegum stöðum, ekki bara á gólfið.

SFDECA3545F62C84885B1CBBD4A02DBD3B4_960x SFD90F7219C9ED94B6A97CF443EC8BEC11A_960xSFD085EE5CBAF884D81AD2682442CA4D4CD_960x SFDD6DC8A398FF240E7A7243C4FD1C5A7FB_960x

Það sem að greip mig við þetta heimili er eldhúsið, speglarnir á milli innréttinganna eru ótrúlega töff, ég ímynda mér þó að það sé ekki gaman að halda þeim hreinum.

SFD4BAEEF1A44124C9EB99C2EE0BCBC46DC_960x

Það má ekki gleyma að skreyta smá líka á baðherberginu, þessi myndaveggur er flottur.

Fleiri myndir er hægt að skoða hér, 

Ég vona svo að dagurinn ykkar verði ótrúlega góður og laus við allt stress!

☆☆☆

HEIMA UM JÓLIN

Skrifa Innlegg