Ég er ástfangin af mynda & bókaveggnum á heimili Ninu sem heldur úti blogginu Stylizimo, daman er auðvitað smekkleg með eindæmum og allt sem hún gerir á heimilinu sínu verður yfirleitt alveg stórkostlegt að mínu mati. Ég hef fylgt henni frá upphafi og verð alltaf hálf veik fyrir að breyta heima hjá mér þegar hún breytir til hjá sér, – smá vandræðalegt ég veit. Núna nýlega tók hún sig til og málaði vegginn og vegghillurnar í stofunni sinni í dásamlegum grágrænum lit sem tónar svo fallega við viðarlitaða rammana og svart hvítar myndir.
Hvernig væri nú að fá sér svona fallegan vegg og raða upp uppáhalds bókunum og listaverkum?
Áður en hún málaði var veggurinn málaður svartur og var nokkuð töff á meðan að grái liturinn er meira afslappaður og leyfir myndunum og litnum að njóta sín betur.
Myndir via Stylizimo
Hvort eruð þið að fíla betur, gráa eða svarta? Það má nú aldeilis útbúa svona smart vegg með klassískum myndahillum frá elsku Ikea en aðaltrixið er að mála þær í sama lit og vegginn.
Skrifa Innlegg