fbpx

MÚMÍN VETRARLÍNAN ER MÆTT // SNOW MOONLIGHT

Samstarf

Veturinn er kominn og falleg vetrarlína Múmín er komin í verslanir ♡

Vetrarlínan 2021 er sú síðasta í röðinni sem byggir á teikningum úr bókinni Moominland Midwinter. Myndefni bollans er teikning sem má finna á upphafssíðu skáldsögunnar. Tunglið skein í andlit Múmínsnáðans sem hafði vaknað úr vetrardvala og gat ekki sofnað aftur. Á myndinni má sjá Múmínsnáðann, vin hans Tikka tú og Míu litlu. Þau standa öll við frosið hafið og horfa á sæhestinn á kraftmiklu stökki í átt að sjóndeildarhringnum. 

“Himininn var nánast svartur en fallegur blár litur speglaðist af snjónum í tunglskininu. Sjórinn svaf værum svefni undir ísnum og dýpst niðri, við rætur jarðar, sváfu smádýrin og dreymdu um vorið. Enn var þó langt í vorið því áramótin voru rétt svo nýliðin.”

Heitt kakó eða kaffi á þessum kalda degi í nýja vetrarbollanum hljómar ansi vel ♡ Múmín vetralínan er til sölu hjá helstu söluaðilum Iittala og í ibúðinni að sjálfsögðu.

Eigið góðan dag kæru lesendur,

Fylgstu einnig með á Instagram @svana.svartahvitu

HIN FULLKOMNA GJÖF - POTTAPLÖNTUÁSKRIFT BLÓMSTRU

Skrifa Innlegg