Það er í raun ótrúlegt að ég sinni ekki betur flokknum hér á síðunni sem heitir Persónulegt, bæði hef ég sjálf ótrúlega gaman af því að skyggnast inn í líf annara á bloggvafri mínu og finnst það oft vera skemmtilegustu færslurnar:) Ég tók saman nokkrar símamyndir til að deila með ykkur. Lífið þessa dagana gerist að miklu leyti innan veggja heimilisins, veðrið er jú ekki að bjóða mér uppá að fara í göngutúra með vagninn alla daga og við Bjartur erum bíllaus flesta daga.
Þetta er “skrifstofan” mín:) Þarna má sjá glitta í 129 myndir af hlutum sem ég vil losna við. Ég er að reyna að ákveða hvar besti vettvangurinn til að selja hluti sé í dag, líklega verður Notaðar hönnunarvörur á facebook fyrir valinu fyrir marga af þessum hlutum, einnig skellti ég inn 3 flíkum á síðuna Merkjavara, föt, skór og aukahlutir í gærkvöldi. Ég mæli með þessum síðum ef þú vilt selja eða gera góð kaup. Svo er ég að reyna að koma mér í holla janúargírinn með boozti alla daga nema það að bleika nammiskálin var full af súkkulaði þegar ég vaknaði (!)
String hillan þessa dagana, -afþví að ég hef gaman af því að sjá hvernig aðrir raða í hillurnar sínar. Gyllta eggið er peningabaukurinn minn frá Tiger og svona líka fínt hillustáss í leiðinni. Æj svo er ég svo hrikalega skotin í barninu mínu að ég treð myndum af honum allstaðar, er það ekki bara eðlilegt:)
Lítill og stór ♡
Þessi gormur á 4 mánaða afmæli á morgun! Tíminn líður of hratt úff.
Fallegasta mublan? Mér finnst svona leikteppi alveg ferlega ljót verð ég að viðurkenna en það fær að sjálfsögðu að vera uppivið alladaga, ég fórnaði líka fínu gærunni minni til að hafa mjúkt undirlag. Bjartur er stundum kominn langt útá gólf eða undir skenkinn ef ég rétt lít af honum, frekar fyndinn krakki. Jújú og svo jólatrédúkurinn ennþá uppivið!
Ein sérvalin í lokin af okkur mæðginum á jólunum, myndasvipurinn hjá mínum er nefnilega svo ofsa fínn.
Eins og þið sjáið hér að ofan þá snúast dagarnir mínir bara um þennan gorm, jú og smá vinnu hér og þar því ég er bara í 50% orlofi:)
Vonandi var dagurinn ykkar fínn!
Skrifa Innlegg