fbpx

JÓLASKRAUT ÁRSINS: VILTU VINNA EINTAK?

Það þarf varla að kynna Pyropet dýrakertin fyrir ykkur sem hönnuð eru af Þórunni Árnadóttur. Krúttlegri kerti er varla hægt að finna og eiga kertin sér risastóran aðdáendahóp bæði hér heima sem og erlendis. Nýlega bættist við kertafjölskylduna jólahreindýrið Dýri og kanínan Hoppa og í tilefni þess ætlum við Þórunn að endurvekja skemmtilegan leik á Instagram sem við héldum einnig í fyrra, sjá hér. Þar sem að jólin eru á næsti leyti er tilvalið að gefa heppnum þátttakanda kertið Dýra sem hlýtur einfaldlega að vera jólaskraut ársins!

Ég er alveg eldheitur aðdáandi Pyropet kertanna og væri gjarnan til í að eiga alla fjölskylduna en núna er efst á óskalistanum Dýri og svört Kisa sem var einnig að bætast við fjölskylduna. Nú kann einhverjum að finnast ég fara örlítið yfir strikið því að ég sé nú þegar með annan gjafaleik í gangi, sjá hér, en ég skal segja ykkur það að það er ekki hægt að gera neitt of mikið þegar kemur að jólunum:) Lestu örlítið lengra til að sjá hvernig á að taka þátt!

10702212_1667307840148345_6546790132305507209_n 10984215_1665950080284121_2365004641865666896_n

Kertið lítur út eins og saklaust hreindýr við fyrstu sýn en inni í vaxinu er falin beinagrind sem birtist óvænt eftir að kveikt hefur verið á kertinu.

12240041_1665950126950783_1495924779786787015_n

12249707_1665950100284119_1418958487913020245_n 12279085_1665950016950794_72736478067722471_n

Hér má svo sjá alla Pyropet fjölskylduna, litlu krúttin.

12309717_1669112546634541_4246173819959501104_o

Við Þórunn deilum miklum áhuga á dýrum og þá sérstaklega á kisum, í fyrra báðum við lesendur um að deila á Instagram skemmtilegum myndum af kisum til að næla sér í Kisukerti en þar sem að það er frekar erfitt að ná myndum af hreindýri þá verður þemað í ár Dýrleg jól eða #dyrlegjol sem þýðir það að öll dýr mega vera með:)

Það sem þú þarft því að gera til að taka þátt er að merkja þína dýramynd með #DYRLEGJOL & #TRENDNET á Instagram. Munið að það þarf að hafa opið Instagram til að við sjáum myndirnar ykkar:)

Mikið hlakka ég til að sjá instagramsíðu Trendnets fyllast af dýramyndum og ég hvet ykkur til að taka þátt í þessum skemmtilega og auðvelda leik. Dýramyndir eru jú alveg hrikalega skemmtilegar:)

Kíkið einnig við á facebooksíðu Pyropet og smellið á like-takkann.

Góða skemmtun og munið að merkja myndirnar #TRENDNET & #DYRLEGJOL

Einn heppinn þátttakandi verður dreginn út á fimmtudaginn 10.desember.

Screen-Shot-2015-04-23-at-22.38.4211

JÓLAGJAFAHUGMYNDIR #1

Skrifa Innlegg

5 Skilaboð

  1. Fjóla

    8. December 2015

    ooohhh … ég er sjúk í þessi kerti!! er alveg búin að eiga þau nokkur og kaupi mér alltaf meira <3

  2. Sigrun SIgursteinsdóttir

    8. December 2015

    Sniðugt já takk

  3. Valgerður Fjóla

    9. December 2015

    Væri mikið til í svona :)

  4. Anna

    12. December 2015

    Er búið að tilkynna sigurvegara? :-)

  5. Birta

    13. December 2015

    Væri líka til í að vita hvort að sigurverari hafi verið tilkynntur? :) Það fór alveg framhjá mér.