fbpx

INNLIT : SUIT REYKJAVÍK

BúðirHönnunÍslensk hönnun

Eins og Elísabet Gunnars greindi frá fyrr í dag, (sjá hér) þá mun verslunin SUIT Reykjavík opna á Skólavörðustíg í lok nóvember. Það eru þau Ása Ninna og Guðmundur Hallgrímsson hjá GK Reykjavík sem standa að opnun SUIT Reykjavík og fengu þau til liðs við sig flottu hjónin hjá hönnunarstúdíóinu HAF, þau Hafstein Júlíusson og Karitas Sveinsdóttur til að sjá um hönnun á nýrri og ferskri verslun. Ég heyrði aðeins í Karitas um hönnun verslunarinnar og fékk hana einnig til að sýna mér nokkrar teikningar.

 “Við hönnun búðarinnar vildum við reyna að endurspegla ímynd vörumerkisins SUIT. Samkvæmt ímyndinni á rýmið að vera industrial, einfalt, heiðarlegt og með sterkan óheflaðan karakter. Við viljum koma fólki á óvart með nútímalegum og ferskum lausnum og mikilvægt er að allir hlutir í rýminu hafi gott notagildi.”

1376150_10152025673384104_1790890118_n 1387948_10152026564294104_1726164570_n 1414929_10152025674779104_2001708654_n 1415880_10152026564079104_404943889_n 1420040_10152025673849104_777469290_n

Ljósin eru einnig hönnuð af HAF

1421477_10152026564544104_521812701_n

“Húsið stendur við Skólavörðustíg og er á 4 pöllum og hefur efsti pallurinn mikla lofthæð. Í raun er þetta hús algjör gullmoli og var upphaflega hannað sem listagallerí.”

Ég hef fylgst vel með HAF hjónunum undanfarið og því sem þau hanna og er því viss um að þessi verslun verði mjög djúsí:)

SUIT -Reykjavík

@PIET HEIN EEK

Skrifa Innlegg

2 Skilaboð

  1. Helgi Omars

    6. November 2013

    Þegiðu hvað þetta er flott!!

  2. Kristbjörg Tinna

    10. November 2013

    Vááááááá!! Ég hlakka ekkert lítið til að sjá þessa verslun með eigin augum.. Elska líka fötin frá þessu merki!!