Ég veit að fyrirsögnin er mögulega ekki sú besta… en ég verð alltaf svo glöð þegar ég rekst á falleg heimili þar sem karlmaður hefur haft sem mest að segja um heimilið. Hér býr sænski tískusjarmörinn Daniel Lindström ásamt þremur börnum sínum og hefur hann komið sér vel fyrir í Stokkhólmi með útsýni yfir paradísina Djurgården. Heimilið er málað í hlýjum gráum tón og klassíska hönnun er að finna í hverju horni. Stíllinn er fágaður og það er ekki annað hægt að segja en að herra Daniel sé alveg “meðetta”.
Hömmm… fallegur stóll… eða þið vitið
Myndir via Residence
Uppáhalds hluturinn minn á heimilinu er án efa klassíski hjólavagninn / Trolley eftir Alvar Aalto frá Artek og leðurklædda Sjöan á skrifborðsfótum er síðan alveg einstök. Ég hefði einnig ekkert á móti þessum líflegu svölum!
Hvað er í uppáhaldi hjá ykkur á þessu heimili?
Skrifa Innlegg