fbpx

GRÁTT & GORDJÖSS

Heimili

Hér er ein ofur fín íbúð til að láta sig dreyma yfir, ég er sérstaklega hrifin af gráa litnum á veggjunum og gæti vel hugsað mér að mála nokkra veggi hér heima í þessum lit. Það er reyndar á dagskránni hjá mér að mála þó svo að liturinn sé ekki grár, nei hann er nefnilega fölbleikur og ég geri fastlega ráð fyrir því að ég þurfi að mála þann vegg sjálf haha… En aftur að þessari fínu íbúð, marmaraveggurinn í eldhúsinu er guðdómlegur og himnasængin í svefnherberginu er klárlega eitthvað til að tala um, ég átta mig hreinlega ekki á henni þó svo að hún sé falleg á sinn skrítna hátt. Er ekki annars vorhreingerning á næsta leiti hjá okkur flestum, er þá ekki tilvalið að skoða nokkur vel valin heimili á næstu dögum til að fá smá hvatningu við tiltektina;)

entrance2 entrance3 entrance4 entrance7 entrance9 entrance9a entrance9b entrance9c entrance9d entrance9f entrance9g entrance9i

Heimilið er til sölu hjá sænska Entrance Makleri, ef það er einhverntíman tilefni fyrir tiltekt, þá er það nefnilega fyrir fasteignasöluna!

Hvernig lýst ykkur á þessa?

Screen-Shot-2015-04-23-at-22.38.42111

NÝTT GLAMOUR !

Skrifa Innlegg