Það kemur líklega engum á óvart að það sé einstaklega fallegt heima hjá hönnunarhjónunum þeim Karitas Sveinsdóttur og Hafsteini Júlíussyni sem standa á bakvið hönnunarstofuna HAF Studio og hönnunarverslunina HAF Store. Núna er komið að því að þau selja heimili sitt á Sólvallagötu og það er eflaust eftir að vera keppst um þessa draumaíbúð enda hjónin fagurkerar fram í fingurgóma.
Kíkjum í heimsókn –
Ljósmyndari: Gunnar Sverrisson
“Stofan, borðstofan og eldhúsið eru samliggjandi. Eldhúsinnrétting er ný úr Ikea með HAF FRONT eikar framhliðum. Gaseldavél og ofn frá SMEG. Vaskur í eldhúsi er úr steinplasti og blöndunartæki úr burstuðu stáli. Borðplata í eldhúsinnréttingu er úr Carrara marmara. Mjög falleg vængjahurð með gleri í er á milli stofu og borðstofu.”
“Parket á gólfum er gegnheil hvítolíuborin fura sem er niðurlímd á hljóðeinangrandi dúk.”
“Baðherbergið er flísalagt og með gegnheilum Terrazzo flísum frá Parka.”
Myndir : Gunnar Sverrisson
Dásamlega fallegt heimili, hér er án efa gott að búa. Fyrir frekari upplýsingar varðandi þessa eign smellið þá á þennan link hér –
// Fylgstu einnig með á Instagram @svana.svartahvitu
Skrifa Innlegg