fbpx

SNYRTITÖSKUR

Mig langar alveg ótrúlega að uppfæra tvenna hluti, snyrtitöskuna og seðlaveskið.

Snyrtitaskan mín er of lítil og lokuð. Ég myndi vilja eiga eina sem væri opin og góð þannig að ég sæi auðveldlega allt sem í henni er geymt. Mig hefur lengi langað í snyrtitösku frá Marc by Marc Jacobs – hérna eru nokkrar sem ég fíla.

 

Ég er hrifnust af röndóttu/mynstruðu, sægrænu og neongulu.

Þessar snyrtitöskur kosta allar 88 dollara, sem gera 10.900 kr.

Mig langar líka að uppfæra seðlaveskið – og set inn nokkur falleg sem mig langar í fljótlega.

xx

Andrea Röfn

 

OUTFIT

Skrifa Innlegg

Skilaboð 1

  1. Elísabet Gunn

    5. July 2013

    Númer 4 og neðsta fá vinningin frá mér :)
    Mig vantar líka nýja snyrtitösku !!