Þar sem ég er umvafin vægast sagt fallegum strigaskóm á hverjum einasta degi hef ég ákveðið að byrja með nýjan lið á blogginu: SNEAKERS OF THE DAY eða á okkar ástkæra og ylhýra: strigaskór dagsins. Hér ætla ég að kynna fyrir ykkur mín uppáhalds skópör hverju sinni.
Fyrstu sneakers sem ég kynni til leiks eru Gel Lyte III – frá japanska skó- og íþróttarisanum ASICS. Skórinn var framleiddur í fyrsta skipti árið 1991 og á því 25 ára afmæli í ár. Í upphafi var skórinn hannaður sem íþróttavara, en síðan þá hefur hann hægt og bítandi breyst í götuskó. Einkennandi fyrir skóinn er ‘the split tongue’, en tungan skiptist í tvennt. Fjölmörg collaborations hafa verið gerð með Gel Lyte III og þar má nefna samstarf við Size?, Kith, Beams, Ronnie Fieg og Solefly.
Ég fékk mér mitt fyrsta par af Gel Lyte III fyrir stuttu í Whisper Pink litasamsetningunni. Þessir skór eru gríðarlega þægilegir og ég fíla ‘split tongue’ twistið mjög vel. Skórnir mínir fást í Húrra Reykjavík.
xx
Andrea Röfn
Skrifa Innlegg