Einhver ykkar muna eflaust eftir því þegar ég bloggaði um Weekday og allt það fína sem ég óskaði mér þaðan. Á þeim lista voru þessir hælar frá Cheap Monday
Núna eru þeir mínir – og urðu það reyndar fyrir u.þ.b einum og hálfum mánuði. Mamma mín yndislega fór í eina af mörgum vinnuferðum sínum til Skandinavíu og kom með þá óvænt heim handa mér – það borgar sig að vera með blogg!
Ég hef notað þá mikið síðan ég fékk þá og gekk t.d. í þeim um alla London án þess að verða þreytt – fullkomnir hversdagshælar sem virka líka við fín tækifæri.
Þið getið fengið þá hérna.
—
Andrea Röfn
Skrifa Innlegg