fbpx

NORA MAGASIN

Fyrir stuttu átti ég góða kvöldstund með tveimur yndislegum vinkonum.

Við prófuðum nýjan veitingastað, Nora Magasin. Staðurinn er til húsa á Pósthússtræti 9, við hliðina á Hótel Borg.

Maturinn var heldur ekki af verri endanum, en við pöntuðum okkur Karaage kjúkling Japanese style, blandaðar ólífur, logandi Camembert ost og kjúklingaborgara „kebab style”. Svo má alls ekki gleyma gosi í krukku, sem mér finnst alltaf jafn skemmtilegt.

Nora Magasin er virkilega skemmtilegur staður, afslappaður og lifandi með útistemningu þegar veður leyfir. Ég mæli hiklaust með því að þið kíkið – góð hugmynd fyrir helgina!

xx

Andrea Röfn

MIG LANGAR Í

Skrifa Innlegg