Í vor sat ég með kaffibolla á Te&Kaffi og fletti Eurowoman. Á einni af trend síðum blaðsins rakst ég á jakka frá H&M – en ekki var tekið fram úr hvaða línu jakkinn var. Síðan þá hef ég hugsað mikið um jakkann og vonast til að sjá hann í einni af heimsóknum mínum í búðina. Ég var svo í Washington fyrir um mánuði síðan og fann þá jakkann. Hann er partur af nýjustu línu H&M sem ber nafnið H&M studio – línan þykir mér mjög töff og inniheldur hún margar flíkur sem mættu gjarnan hanga í mínum fataskáp. Ég lét jakkann nægja enda búin að vera dugleg í fatainnkaupum síðustu mánuði.
Því miður náðum við vinkonurnar ekki alveg að fanga rétta lit jakkans á myndunum sem við tókum á afar gráum mánudegi – en myndirnar á hm.com sýna hann hins vegar vel. Jakkinn er ennþá fáanlegur HÉR á hm.com ásamt fullt af öðrum fallegum flíkum. Ég mæli með því að þið kíkið á línuna.
xx
Andrea Röfn
Skrifa Innlegg