Morgunmatur dagsins í dag – hafragrautur með bönunum, vínberjum, jarðarberjum, krækiberjum úr sveitinni og örlitlu lífrænu súkkulaði. Þorskalýsið góða, spirulina og kaffi.
Ég er búin að vera í lýsis-átaki síðustu mánuði og er dugleg að hvetja vinkonurnar til að vera með mér í því. Mér finnst sniðugt að setja lýsið í lítið glas til að þurfa ekki að hella því í skeið og lenda í jafnvægisæfingum snemma á morgnanna! Það er alveg týpískt með lýsið að missa það úr skeiðinni og þá lyktar allt eins og lýsi næstu dagana.
Eigið góðan dag og munið eftir gjafaleiknum með Tribo – meira hér!
xx
Andrea Röfn
Skrifa Innlegg