Fyrir jól opnaði MONO á Laugaveginum. MONO er skóbúð í eigu Maríu Birtu & Ella Egilssonar sem eiga fyrir búðina Maníu. Í MONO er risa úrval af flottum skóm; ökklaskór, hælar, stígvél, fylltir hælar, flatbotna skór, spariskór og kuldaskór – og allt á mega góðu verði.
Ég fór og hitti Ella uppi í búð og skoðaði fína úrvalið sem er í boði. Við tókum líka myndir af mínum uppáhalds skópörum til að sýna ykkur! FALLEGT –
SADE – uppáhalds skóparið mitt sem fékk að koma með mér heim.
MÆLI MEÐ! Það er líka nóg til af háum hælum ef þið viljið vera hærri en vinir ykkar! Öll skópörin eru 100% vegan og þau má öll má finna í vefversluninni MONO.IS
xx
Andrea Röfn
Skrifa Innlegg