fbpx

#JÓLASKÓRNIRMÍNIR

Þessa dagana eru Kaupfélagið og Skór.is með skemmtilegan jólaleik í gangi sem ber nafnið Jólaskórnir mínir. Leikurinn fer fram á uppáhaldi okkar allra, instagram. Leikurinn gengur út á að taka mynd af sínum draumaskóm úr Kaupfélaginu eða Skór.is og posta á instagram með kassamerkinu #JÓLASKÓRNIRMÍNIR. Til að posta mynd getið þið annað hvort heimsótt eina af búðunum þeirra í Kringlunni eða Smáralind og tekið mynd af ykkar draumaskóm eða addað búðunum á snapchat! Snilldin ein þegar búðirnar eru líka mættar á snapchat. Á snappinu getið þið svo tekið screenshot af fallegum skóm og sett á instagram. Notendanafn þeirra á snapchat er kaupfelag.skor

Það er ótrúlega mikið af fínum skóm í Kaupfélaginu og Skór.is um þessar mundir. Vagabond, Sixtyseven og fleiri falleg merki. Ég mátaði nokkur pör..


Lauma einni outfit mynd frá helginni þegar ég fór á Hnotubrjótinn með elskulegu mömmu minni. Gríðarlega góð lærdómspása það.

Skór: VAGABOND úr Kaupfélaginu
Pils: vintage
Kápa: AllSaints

Dregið verður í leiknum nokkrum sinnum í desember. Það er til mikils að vinna og væri gleðilegt að fá jólaskóna í snemmbúnum jólapakka!

Jólaskórnir mínir  – takið mynd í búðunum eða takið screenshot á Snapchat – postið svo instagram og munið #jólaskórnirmínir

xx

Andrea Röfn

OUTFIT

Skrifa Innlegg

6 Skilaboð

  1. Tinna

    25. November 2014

    Frá hvaða merki eru skórnir á mynd # 4?

    • Andrea Röfn

      26. November 2014

      Þeir eru frá Sixtyseven!

  2. X

    26. November 2014

    Hvaðan er leddarinn og svarti bolurinn sem þú ert í innan undir? :)

    • Andrea Röfn

      26. November 2014

      Leðurjakkann fékk ég í Urban Outfitters í sumar en hann er líka til í Sautján núna. Hann er úr ekta leðri en samt endurnýjuðu þannig að enginn jakki er eins. Mæli með svona fjárfestingu því ég hef varla farið út honum.
      Bolurinn er úr Monki.

      Kv. Andrea Röfn

  3. Dísa

    26. November 2014

    Þetta er svo ósanngjarnt fyrir þá sem búa fyrir norðan! :(
    Eða bara ekki á höfuðborgarsvæðinu..