Þessa dagana eru Kaupfélagið og Skór.is með skemmtilegan jólaleik í gangi sem ber nafnið Jólaskórnir mínir. Leikurinn fer fram á uppáhaldi okkar allra, instagram. Leikurinn gengur út á að taka mynd af sínum draumaskóm úr Kaupfélaginu eða Skór.is og posta á instagram með kassamerkinu #JÓLASKÓRNIRMÍNIR. Til að posta mynd getið þið annað hvort heimsótt eina af búðunum þeirra í Kringlunni eða Smáralind og tekið mynd af ykkar draumaskóm eða addað búðunum á snapchat! Snilldin ein þegar búðirnar eru líka mættar á snapchat. Á snappinu getið þið svo tekið screenshot af fallegum skóm og sett á instagram. Notendanafn þeirra á snapchat er kaupfelag.skor
Það er ótrúlega mikið af fínum skóm í Kaupfélaginu og Skór.is um þessar mundir. Vagabond, Sixtyseven og fleiri falleg merki. Ég mátaði nokkur pör..
Lauma einni outfit mynd frá helginni þegar ég fór á Hnotubrjótinn með elskulegu mömmu minni. Gríðarlega góð lærdómspása það.
Skór: VAGABOND úr Kaupfélaginu
Pils: vintage
Kápa: AllSaints
Dregið verður í leiknum nokkrum sinnum í desember. Það er til mikils að vinna og væri gleðilegt að fá jólaskóna í snemmbúnum jólapakka!
Jólaskórnir mínir – takið mynd í búðunum eða takið screenshot á Snapchat – postið svo instagram og munið #jólaskórnirmínir
xx
Andrea Röfn
Skrifa Innlegg