Tónlistarverðlaunin Grammys fóru fram á sunnudagskvöld. Líkt og ég hef áður komið inn á er fatavalið á Grammys yfirleitt mun frjálslegra og afslappaðra en á verðlaunahátíðum eins og Óskarnum og Golden Globes. Í ár mátti sjá mikið af pallíettum, fjöðrum, feldum, óhefðbundnum sniðum, lituðum kjólum, lituðu hári, mikið hold og lengi mætti telja.
Hér eru dress kvöldsins ásamt nokkrum skemmtilegum mómentum. Sumt fíla ég ekki en finnst alveg þess virði að hafa með enda eftirtektarverð dress og öðruvísi.
Uppáhalds lúkkið mitt frá kvöldinu. Gwen Stefani í Atelier Versace.
Taylor mín í kjól frá Elie Saab. Hún er þekkt fyrir að vera mjög hefðbundin á verðlaunahátíðum en breytti út af laginu í þetta skiptið. Þetta er kjóll sem ég giska á að elskendur hennar elska en þeir sem fíla hana ekki fíla kjólinn ekki heldur. Ég fíla hana og fíla kjólinn – þó að mér finnist skórnir örlítið „off”.
Beyoncé í kunnuglegum aðstæðum með verðlaunagripi í höndunum
Hjónin í sínu fínasta pússi. Kanye valdi kjólinn á Kim sem er frá Jean Paul Gaultier. Hann minnir mig því miður smá á ofurfínan baðslopp. En nýja klippingin hennar finnst mér mjög flott.
Nicki Minaj í Tom Ford
Þarna sést Kanye í Yeezy 750 Boost skónum sem hann hannaði með Adidas. Ruuuglaðir.
Sam Smith kom, sá og sigraði
Miranda Kerr í partýi eftir Grammys
Paul McCartney, Rihanna og Kanye West
Jane Fonda sló öllum við þetta kvöld í samfestingi frá Balmain. Fyrir þá sem ekki vissu þá er hún 77 ára gömul
Beyoncé í Proenza Schouler
Söngkonan Sia sem kýs oft að láta andlit sitt ekki sjást ásamt dansaranum Maddie Ziegler sem er 12 ára og hefur dansað í tveimur myndböndum SiaRihanna í prinsessukjól frá Giambattista Vali sem tók þrjú sæti í salnum.
Rihanna & Blue Ivy
Miley Cyrus í Alexandre Vauthier
Madonna í Givenchy. Mér finnst því miður ekkert flott við þetta og sýnist flestir fjölmiðlar vera sammála mér.
Charli XCX í Ken smókingnum úr Barbie línu Jeremy Scott fyrir Moschino. Hún vill augljóslega ekki týnast í fjöldanum.
Jessie J í Ralph & Russo
Chrissy Teigen í Emilio Pucci og John Legend
Ciara í Alexandre Vauthier
Pharrell og Helen Lasichanh
Pharrell, Jay Z, Kanye West
Ariana Grande í Atelier Versace
Katy Perry í Zuhair Murad
–
Það mætti segja að klæðnaðurinn á hátíðinni í ár hafi verið bæði heðfbundinn og mjög óhefðbundinn.
Endilega skiljið eftir skoðun..
xx
Andrea Röfn
Skrifa Innlegg