fbpx

VÆNTANLEGT : IKEA PS 2014

Fyrir heimiliðIkea

Á netvafri mínu í kvöld rakst ég á “sneak peek” myndir af væntanlegri Ikea PS 2014 línunni. Þeir segja að þetta sé djarfasta línan þeirra til þessa. Línan er hönnuð með það í huga að vera margnota og höfðu hönnuðirnir í huga að æ fleiri búa þröngt og hafa minni pening á milli handanna til að eyða. -En vilja þrátt fyrir það eiga smart heimili.

Ég valdi úr nokkra hluti sem ég er hrifnust af: 
PE407754

PE408237

Ég er einstaklega hrifin af því að Ikea hafi notað svokallaðar GIF myndir, -sýnir vel notkunarmöguleika á hlutnum .. og svo bara mikið skemmtilegra:)

NEW_WARDROBE

Þessi skápur er mjög flottur, ég myndi kjósa hann án skrautsins þó, -fallega minimalískur og töff.

NEW_CABINET

Ferskjubleikur hornskápur, -hver þarf ekki einn slíkann!

NEW_WALL_SHELF

Hrífulaga hilla!

NEW_TABLE

Borð með grænni skúffu.

NEW_CEILING_LAMP

Og stækkanlegt ljós.

Mjög skemmtileg og flott lína finnst mér, en samkvæmt upplýsingum sem ég fann á netinu er línan þó ekki fáanleg fyrr en um miðjan apríl. Þá skulum við bara krossa fingur að við á litla Fróni þurfum ekki að bíða lengur en aðrir í Skandinavíu:)

Hvernig finnst ykkur þessi lína?

HEIMA UM HELGINA

Skrifa Innlegg

6 Skilaboð

  1. Anonymous

    4. March 2014

    Takk fyrir upplýsingarnar,meiriháttar flott;-)

  2. Pattra S.

    5. March 2014

    Spennt fyrir þessari línu!

  3. Helgi Omars

    5. March 2014

    Geðveik hrífuhillan!!

  4. Elísabet Gunn

    5. March 2014

    Hrífuhillan heillar mig! x Gaman að vörurnar sé sýndar í gif.

  5. Dagný Björg

    5. March 2014

    Þessi lína er geggjuð! Hlakka mikið til að fá hana í búðir.

  6. Elísa

    5. March 2014

    Þetta er æði, ég pissaði næstum í mig af að sjá hrífuhilluna, þetta er nákvæmlega það sem mig vantar í pínulitlu íbúðina mína!