Bara ef hægt væri að ýta á pásu á sunnudögum og eiga daginn örlítið lengur… mínum hefur verið vel varið en akkúrat í þessum skrifuðu orðum er barnið sofandi og kallinn útí skúr að laga stóla og ég því “ein heima” sem er ó svo góð tilfinning sem ég upplifi æ sjaldnar. Ég meina það þó innilega vel en það er bráðnauðsynlegt að fá af og til að vera ein og fá að dúlla sér í friði frá öllu áreiti. Ég þarf þó núna að draga upp skólabók því eftir afar annasaman mánuð tókst mér að setja skólann í síðasta sætið og er því aðeins á eftir áætlun. Eitt af mínum litlu markmiðum sem ég setti mér í byrjun árs var að verða virkari á instagram og haldiði ekki að mér sé að takast það ágætlega, hér koma því nokkrar nýjar myndir. Hægt er að fylgja mér á instagram @svana_
Skálum í Amino og skipuleggjum vikuna / mánuðinn!
Honum Betúel mínum leiðist seint…
Skrifa Innlegg