Í dag eru liðin 6 ár frá því að Snúran byrjaði sem lítil netverslun og í tilefni þess verður 20% afsláttur af öllum vörum í bæði verslun og á netinu frá 19. – 22. mars. Eins og þið vitið flest þá er Snúran í dag ein af glæsilegri verslunum landsins og býður upp á einstök merki eins og t.d. Reflections Copenhagen, Design by us, Bolia, OYOY, Iittala og fleiri vörumerki sem gleðja augu allra fagurkera.
Í samstarfi við Snúruna tók ég saman mínar uppáhalds vörur sem allar eiga það sameiginlegt að vera á góðum afslætti á afmælisdögunum. Ég er að minnsta kosti með augun á nokkrum gersemum. Fyrir þau ykkar sem ekki treysta sér út á þessum tímum þá er gott að geta nýtt sér vefverslunina og einnig er hægt að hringja í verslun og fá afhentar vörur út í bíl. Brilliant!
// 1. Hrikalega töff Leaves veggljós. // 2. Blómleg Venus snyrtibudda. // 3. Gyllt Harakiri loftljós. // 4. Geggjaður röndóttur Candy púði. // 5. New Wave ljósið eina sanna. // 6. Drauma Diamond spegill frá Reflections. // 7. Klassísk iittala skál. // 8. Svarthvítur púði frá Bungalow. // 9. Gylltur og bleikur pouf frá Jakobsdal. // 10. Kristalskertastjaki frá Reflections, æðislegur litur. // 11. Plöntupottur á fæti frá Botanique. //
20% afslátturinn gildir af öllum vörum í bæði verslun og á netinu frá 19. – 22. mars. Það má nú aldeilis gera vel við sig með eins og smá punti fyrir heimilið… úllen dúllen doff.
Til hamingju með afmælið Snúran ♡ Megi árin ykkar verða enn fleiri!
// Fylgstu einnig með á Instagram @svana.svartahvitu
Skrifa Innlegg