fbpx

SKYNDIÁKVARÐANIRNAR

PersónulegtSkrifstofa

Ég á það til að taka mjög oft skyndiákvarðanir, eiginlega of oft. Og jafnvel í málum sem skipta mig gífurlega miklu máli eins og þegar ég ákvað að flytja heim frá Hollandi, þá hringdi ég daginn eftir í fjölskylduna mína og tilkynnti þeim að ég væri hætt í skólanum og þá var mér ekkert haggað. Og ef mig langar í vinnu þá sendi ég einfaldlega póst á stjórnanda þess fyrirtækis á innan við hálftíma því annars gæti mér hreinlega snúist hugur. Ég ætla svo sem ekki að telja upp allar skyndiákvarðanir sem ég hef tekið því ég veit ekki hvað ykkur þætti um mig eftir þann lestur. En fjölskyldan mín er orðin vön þessu og stundum eru skyndiákvarðanir langbestar! Núna er ég að spá í að skrá mig aftur í skóla, en ég veit ekki hvort það sé sniðugt að taka slíka skyndiákvörðun? Ég hef nefnilega ekki almennilega fundið mig í því sem ég er að gera og er búin að vera leitandi í frekar langan tíma núna í fullri hreinskilni og ekki vitað hvert ég vilji stefna. Ég kláraði nám í vöruhönnun fyrir nokkrum árum en af og til hefur sú hugsun læðst að mér hvort að það nám hafi verið það rétta fyrir mig þó svo að námið nýtist mér ágætlega í dag. Ég hef nefnilega óbilandi áhuga á innanhússhönnun og fæ af og til fyrirspurnir að taka slík verkefni að mér, en mér finnst mér skorta upp á vissa fagþekkingu til að geta tekið slíkt að mér. Það er víst ekki nóg að hafa bara áhuga, það þarf líka að kunna til verka. Ég er þegar byrjuð að skoða skóla, en er að reyna að sitja á mér að drífa mig ekki að taka þessa ákvörðun, næsta önn hefst nefnilega 1.nóvember! En hversu gaman væri nú að fara aftur í skóla:)

Nokkrar flottar vinnuaðstöður í tilefni þess! Frá Pinterest síðu Svart á hvítu

Screen-Shot-2015-04-23-at-22.38.4211

FULLKOMIÐ HEIMILI

Skrifa Innlegg

Hætta við svar

4 Skilaboð

  1. Pattra S.

    23. October 2015

    Ég segi go for it!!

  2. Íris

    23. October 2015

    Hvaða skóla ertu að pæla í? Ef ég má forvitnast :)

    • Svart á Hvítu

      25. October 2015

      Hæ já að sjálfsögðu:)
      Sko þessa stundina er ég að skoða Diplóma nám í Copenhagen school of interior design, það er kennt sem fjarnám: http://www.arkitektskolen.com/?id=2
      Hinsvegar ef aðstæður væru aðrar hjá mér (ég myndi þá flytja erlendis) þá myndi ég frekar kjósa master eða jafnvel B.A. í innanhúshönnun og þá koma fjölmargir skólar til greina, Parson, IED, LCCA, eða Designskolen (kaddk). Ef þú vilt starfa sem innanhússhönnuður þá er Diplóma sjaldnast nóg.
      -Svana:)

  3. Sigrún

    23. October 2015

    Í mínum bókum tapar maður aldrei á að mennta sig! Kv frá einni sem er líka leitandi…