Ég á það til að taka mjög oft skyndiákvarðanir, eiginlega of oft. Og jafnvel í málum sem skipta mig gífurlega miklu máli eins og þegar ég ákvað að flytja heim frá Hollandi, þá hringdi ég daginn eftir í fjölskylduna mína og tilkynnti þeim að ég væri hætt í skólanum og þá var mér ekkert haggað. Og ef mig langar í vinnu þá sendi ég einfaldlega póst á stjórnanda þess fyrirtækis á innan við hálftíma því annars gæti mér hreinlega snúist hugur. Ég ætla svo sem ekki að telja upp allar skyndiákvarðanir sem ég hef tekið því ég veit ekki hvað ykkur þætti um mig eftir þann lestur. En fjölskyldan mín er orðin vön þessu og stundum eru skyndiákvarðanir langbestar! Núna er ég að spá í að skrá mig aftur í skóla, en ég veit ekki hvort það sé sniðugt að taka slíka skyndiákvörðun? Ég hef nefnilega ekki almennilega fundið mig í því sem ég er að gera og er búin að vera leitandi í frekar langan tíma núna í fullri hreinskilni og ekki vitað hvert ég vilji stefna. Ég kláraði nám í vöruhönnun fyrir nokkrum árum en af og til hefur sú hugsun læðst að mér hvort að það nám hafi verið það rétta fyrir mig þó svo að námið nýtist mér ágætlega í dag. Ég hef nefnilega óbilandi áhuga á innanhússhönnun og fæ af og til fyrirspurnir að taka slík verkefni að mér, en mér finnst mér skorta upp á vissa fagþekkingu til að geta tekið slíkt að mér. Það er víst ekki nóg að hafa bara áhuga, það þarf líka að kunna til verka. Ég er þegar byrjuð að skoða skóla, en er að reyna að sitja á mér að drífa mig ekki að taka þessa ákvörðun, næsta önn hefst nefnilega 1.nóvember! En hversu gaman væri nú að fara aftur í skóla:)
Nokkrar flottar vinnuaðstöður í tilefni þess! Frá Pinterest síðu Svart á hvítu
Skrifa Innlegg