Helgarinnlitið að þessu sinni er sænskt og sjarmerandi með fallegum ljósum og dásamlegu barnaherbergi. Pappírsljósið Formakami frá &tradition er mjög skemmtilegt yfir borðstofuborðinu og einn uppáhalds lampinn minn, Flowerpot prýðir stofuna. Barnaherbergið heillar með klassískum Ikea Ivar skáp máluðum í björtum lit sem ég gæti vel hugsað mér að leika eftir. Bleiki liturinn er frábær við ljósgrænan litinn á veggjunum. Það er margt annað sniðugt í herberginu eins og blöðru náttljósið, dótahillurnar og kaffikrókurinn á miðju gólfinu. Hér er án efa gaman að leika.
Kíkjum í heimsókn á þetta bjarta og fallega heimili,
Myndir // Alvhem fasteignasala
Fylgstu einnig með á Instagram @svana.svartahvitu
Skrifa Innlegg