Á þessum dásemdarföstudegi og aðeins korter í helgarfrí vil ég sýna ykkur nýjasta eintakið af NUDE MAGAZINE sem kom út fyrr í dag. Þarna er að sjálfsögðu að finna allt það nýjasta í tískunni en toppurinn á tilverunni að mínu mati er að sjálfsögðu nýji Lífstílskaflinn sem ég ritstýri en vinn svo með hinni hæfileikaríku Theódoru Mjöll. Við heimsóttum tvær OFUR flottar konur í þetta skiptið og fengum að mynda heimilin þeirra. Það eru þær Andrea Magnúsdóttir fatahönnuður og eigandi hönnunarverslunarinnar AndreA á Strandgötu og Berglind Óskarsdóttir sem er fatahönnuður frá LHÍ. Andrea frumsýndi einmitt nýja sumarlínu sína í síðustu viku sem hefur varla farið framhjá neinum tískumeðvituðum íslending sem skoðar fjölmiðla og Berglind sýndi einnig nýlega útskriftarlínu sína í Listasafni Reykjavíkur sem stóð algörlega uppúr að okkar mati og er hún eftir að gera góða hluti í framtíðinni.
Andrea og Berglind eiga því margt sameiginlegt svona fyrir utan það að vera í Nude Magazine, og svo eru þær reyndar báðar alveg gordjöss og eiga gullfalleg heimili.
Þema tískuhlutans er “The model issue”.
Ég hvet ykkur til að kíkja á þetta fallega eintak sem þið finnið hér. Lífstílskaflinn hefst á bls.73.
Heimili Andreu og Berglindar eru virkilega falleg og þær eru augljóslega miklar smekkdömur.
Svo er einnig að finna í blaðinu viðtal við einn flottasta sænska innanhússstílistann í dag, hana Pellu Hedeby, ásamt heilum helling af fallegum hlutum fyrir heimilið.
Það er besta tilfinning í heimi að vinna við áhugamálið sitt og vinna með fólki sem veit hvað það syngur.
Ég get bara ekki sagt það nógu oft:)
Eigið góða helgi! Og ekki gleyma að kíkja á nýja blaðið sem þið finnið hér.
Skrifa Innlegg