fbpx

MJÚKIR TÓNAR & LOÐNAR MOTTUR

Heimili

Ég held áfram að sýna ykkur ljós og lekker heimili – ég hreinlega elska þennan stíl þar sem allt er í svona notalegum ljósum litum og þessar mjúku loðnu mottur eru alveg toppurinn. Veggirnir eru málaðir í notalegum sandlit sem er afar vinsælt í dag og heimilið skreytt húsgögnum og skrautmunum í ljósum litum ásamt nokkrum viðarhúsgögnum ásamt því að vegleg glerljósakróna trónir yfir stofunni og stelur athyglinni. Þetta huggulega sænska heimili er alveg með puttann á púlsinum mætti segja þegar kemur að skandinavískri heimilistísku og loðnu motturnar frá Cappelin Dimyr eru mjög ofarlega á listanum yfir vinsælustu motturnar í dag (fást í Dimm)♡ Það er þó meira en bara loðnar og djúsí mottur en það er heill sófi sem er klæddur er einhverskonar ullarskinni og eflaust mjög gott að kúra í honum. Hvað finnst ykkur um þessa tísku?

Kíkjum í heimsókn,

Myndir : My Scandinavian Home

Dásamlega fallega heimili, hér gæti ég búið!

DRAUMABORÐIÐ ER TILBÚIÐ!

Skrifa Innlegg