Aldrei hefði mig grunað að það væri svona erfitt að ákveða liti á veggi en undanfarna viku hef ég verið að reyna að velja liti fyrir svefnherbergið og anddyrið og hef snúist í nokkra hringi með valið. Ég er búin að prófa núna fjóra liti og gat valið litinn fyrir anddyrið (ljósbleikur) en svefnherbergið ætlar að verða aðeins erfiðara, þar hélt ég að ég vildi einhverskonar gráan tón (sjá efstu tvær myndirnar hér að neðan) en eftir að hafa prófað tvo liti á svefnherbergið fannst mér það ekki nógu mikið ég, finnst ég þurfa aðeins hreinni lit og ferskari. Því er ég aftur komin yfir í bláu deildina og ætla að prófa tvo liti í viðbót sem ég er með í huga.
Þessi hér að ofan var töluvert grænni en myndin gefur til kynna en þó virkilega fallegur. Heitir Intense le havre
Þessi hér að ofan er líka töff, litirnir sem ég prófaði hétu: Dusky Roubaix (dökkur) & Acomix Farver FN.02.37 (ljósari). Þið sem fylgdust með á Snapchat fattið muninn, skal birta aftur myndir af testunum þegar síðustu prufurnar mæta í hús:) Hér að neðan er mynd sem ég fann af Dusky Roubaix. Finnst hann mjög flottur en birtan í svefnherberginu gerði hann of brúnleitann sem ég var ekki nógu hrifin af.
Liturinn hér að ofan heitir Grey Sparrow frá Nordsjö, í litakóða S 3502-Y.
Síðan er það þessi litur sem ég er ansi heit fyrir, Denim Drift er litur ársins 2017 frá Nordsjö og er einstaklega fallegur.
Þetta er sami liturinn hér að ofan og að neðan, Denim Drift, liturinn er ólíkur eftir hvernig birtan er ásamt því að það getur spilað inní hvernig ljósmyndarinn hreinlega vinnur myndirnar sínar:) Hlakka til að sjá hvernig hann verður heima!
Hér að ofan má sjá lit ársins Denim Drift frá Nordsjö fyrir miðju ásamt fjölskyldu litapallettu hans sem tónar vel við.
Fyrir þau ykkar sem eruð í málningarhugleiðingum eins og ég þá prófaði ég í dag ókeypis forrit í símann sem leyfði mér að taka mynd hér heima í stofu og sjá hvernig ólíkir litir koma út í “raunveruleikanum”. Mamma benti mér á það eftir að hún heyrði af málningarhugleiðingunum mínum, en fyrir tilviljun var það frá sama fyrirtæki og ég hef verið að skoða málningu frá, Nordsjö sem fæst í Sérefni. Hér má sjá frekari upplýsingar um forritið. Þú getur einnig tekið mynd af uppáhaldshlutnum þínum, flík, listaverki eða öðru og fundið hvaða málning kemst næst þeim lit! Mæli með að prófa:)
Ég stefni á að sækja síðustu prufurnar á morgun og vonandi næ ég að blikka minn mann að mála með mér sem allra fyrst. Skal leyfa ykkur að fylgjast með á snappinu! x
Skrifa Innlegg