fbpx

MÁ BJÓÐA ÞÉR TIL PARÍSAR?

Heimili

París er ein mest sjarmerandi borg sem ég hef heimsótt og kemur ekki á óvart að þetta fallega heimili sem staðsett er einmitt í París sé með þeim fallegri sem ég hef séð. Listarnir og rósettur í loftum eru eins og glæsileg listaverk og gefa íbúðinni svo fágað yfirbragð, marmarinn ásamt stærðarinnar speglum og ljósum sem minna helst á skúlptúr gera íbúðina alveg einstaka. Það er svo margt hér að sjá sem er almennt ekki að finna á hinu venjulega heimili og ég skoða hverja mynd aftur og aftur í leit að nýjum atriðum…

Þvílík draumastofa, með fallegum velúr sófum við einstakann arinn – hversu ljúft væri að sitja hér á kvöldin og slappa af?

Takið eftir hvað eldhúsið er fallegt, með marmara ekki aðeins á veggnum heldur einnig í hillunni og á eyjunni.

Innbyggðar hillur við eldhúsbekkinn sem er klæddur með velúr efni – þvílíkur draumur.

Ég hefði gjarnan viljað sjá meira af baðherberginu, en frístandandi baðkar og stærðarinnar tvöfaldur vaskur prýðir að minnsta kosti baðherbergið.

Via My Scandinavian home / Ljósmyndir:Benoit Linero

Atollo borðlampinn er mjög viðeigandi á þessu glæsta heimili enda með fallegri lömpum sem hannaðir hafa verið. Klassísk hönnun frá 1977 eftir Vico Magistretti og ég hefði ekkert á móti því að eiga og þið varla heldur? En heimilið… eigum við að ræða þennan gullmola! Ég bilast – þetta er svo fallegt heimili.

DRAUMKENNT HEIMILI : ARTILLERIET

Skrifa Innlegg

Hætta við svar

4 Skilaboð

  1. Ásta

    20. May 2017

    Þessi stóll á baðinu er æði !! Er hann ekki eins og stólarnir á oddson? Veistu hvaðan þeir eru?

  2. Soffía G Ólafsdóttir

    23. May 2017

    Þessi íbúð er algjör draumur, og í París í þokkabót, I love it !!!!!!