fbpx

LOKSINS MINN // B&G ÍSBJÖRNINN

PersónulegtUppáhalds

Lengi hefur mig langað að eignast ísbjörn frá Bing & Grøndahl / Royal Copenhagen en samkvæmt netvafri mínu þá voru þeir framleiddir á árunum 1970 til 1983. Bing & Grøndahl postulínverksmiðjan á rætur sínar að rekja aftur til ársins 1853 og var svo sameinuð Royal Copenhagen árið 1987 en þó hafa t.d. jólalínur beggja merkja haldið áfram í öll þessi ár, sjá t.d. jólaplattana frægu sem koma út á hverju ári frá bæði B&G ásamt RC. Ég er mjög heilluð af nokkrum postulínfígúrum frá B&G og standa þar uppúr margir fuglar ásamt ísbjörnunum fallegu. Ég pantaði minn að utan en það er hægt að liggja á ýmsum sölusíðum klukkutímum saman að skoða uppboð og annað skemmtilegt þegar kemur að gamalli danskri hönnun.

16735171_10155771948523332_1701169395_o 16776387_10155771948473332_1490985671_o

Voruð þið síðan ekki búin að kíkja á nýjasta tölublað Glamour? Mæli með x

16735641_10155771944928332_1151149760_o

Núna bíð ég spennt eftir að Mæðraplattinn frá B&G komi til landsins en hann hefur mig langað í frá því að ég var ólétt 2014 og ég get ekki beðið eftir að hengja hann upp á vegg.

svartahvitu-snapp2-1

H&M INNLIT

Skrifa Innlegg

4 Skilaboð

  1. Elín

    14. February 2017

    Innilega til hamingju með fallegan grip! En með hvaða öðrum uppboðssíðum en ebay getur maður verið að skoða?

  2. Margret

    15. February 2017

    Ó hvað hann er fagur. Mig er einmitt búið að dreyma um að eignast eintak allt of lengi. Viltu deila með okkur hvað þú borgaðir fyrir hann?

    • Svart á Hvítu

      15. February 2017

      Kostaði mig um 15þús (2nd quality) er þó í 100% ástandi með fullkomnum glerjung, fékk minn hér: http://www.dphtrading.com
      keypti líka mæðraplattann á þeirri síðu:)
      -Lét þó senda á vinkonu í DK þaðan sem ég tók hann, er ekki viss með sendingu til Íslands?